IOGT félagi látinn
Helgi Seljan, fyrrverandi formaður IOGT á Íslandi og alþingismaður, lést þriðjudaginn, 10. desember, 85 ára að aldri. Helgi starfaði alla ævi ötullega að framgangi bindindishugsjónarinnar og að áfengisforvörnum og var þar í forustusveit. Hann stofnaði Barnastúkur á Fáskrúðsfirði og Reyðarfirði. Á Alþingi vann hann ávallt að framgangi bindindis- og forvarnamála. Hann







