Helgi Selj­an, fyrr­ver­andi formaður IOGT á Íslandi og alþing­ismaður, lést þriðju­daginn, 10. desem­ber, 85 ára að aldri.

Helgi starfaði alla ævi ötullega að framgangi bind­ind­is­hugsjónarinnar og að áfeng­is­forvörnum og var þar í forustusveit. Hann stofnaði Barnastúkur á Fáskrúðsfirði og Reyðarfirði. Á Alþingi vann hann ávallt að framgangi bindindis- og forvarnamála. Hann var formaður Landssambandsins gegn áfengisbölinu 1988–1994 og sat í áfengisvarnaráði 1987–1995. Helgi skrifaði margar greinar af mikilli rökfestu um bindindi og áfengisbölið. IOGT á Íslandi var breytt úr reglu í félag um síðustu aldamót og var Helgi beðinn um verða fyrsti formaður hins nýja félags. Félagar í bindindishreyfingunni, IOGT á Íslandi þakka góð kynni og fórnfús störf í þágu bindindishreyfingarinnar. Aðstandendum færum við okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Björn Sævar Einarsson, formaður IOGT á Íslandi.
Helgi fæddist á Eskif­irði 15. janú­ar 1934, son­ur þeirra Friðriks Árna­son­ar og El­ín­borg­ar Krist­ín­ar Þor­láks­dótt­ur konu hans. Fóst­ur­for­eldr­ar hans voru Jó­hann Björns­son, bóndi í Selja­teigi í Reyðarf­irði, og kona hans Jó­hanna Helga Bene­dikts­dótt­ir. Árið 1953 lauk Helgi kenn­ara­prófi og var næstu tvö árin þar á eft­ir kenn­ari á Búðum í Fá­skrúðsfirði. Árið 1955 réðist hann sem kenn­ari við barna- og ung­linga­skól­ann á Reyðarf­irði þar sem hann tók við skóla­stjórn árið 1962. Því starfi gegndi hann til 1971, en þá var hann kjör­inn til setu á Alþingi sem þingmaður Alþýðubanda­lags­ins í Aust­ur­lands­kjör­dæmi. Á þingi sat Helgi til árs­ins 1987 þegar hann gaf ekki kost á sér til end­ur­kjörs . Hann var for­seti efri deild­ar Alþing­is 1979-1983. Eft­ir þing­fer­il­inn varð Helgi fé­lags­mála­full­trúi hjá Öryrkja­banda­lagi Íslands og seinna fram­kvæmda­stjóri til starfs­loka árið 2001. Ung­ur hóf Helgi af­skipti af fé­lags­mál­um. Hann var í stjórn Leik­fé­lags Reyðarfjarðar 1959-1968 og í for­ystu Banda­lags ís­lenskra leik­fé­laga, m.a. sem formaður um tveggja ára skeið. Var svo formaður Verk­lýðsfé­lags Reyðarfjarðar 1958-1966. Helgi starfaði mikið inn­an bind­ind­is­hreyf­ing­ar­inn­ar og að áfeng­is­varn­ar­mál­um. Þá beitti Helgi sér mjög í mál­efn­um ör­yrkja og fatlaðs fólks. Helgi var full­trúi í hrepps­nefnd Reyðarfjarðar 1962-1966 og 1970-1978 og sat í bankaráði Búnaðarbanka Íslands og stjórn Stofn­lána­deild­ar land­búnaðar­ins 1973-1986. Þá skrifaði hann fjölda greina og pistla í blöð og tíma­rit, bæði laust og bundið mál. Eft­ir­lif­andi kona Helga er Jó­hanna Þórodds­dótt­ir. Börn þeirra eru Helga Björk (1955), Þórodd­ur (1956), Jó­hann Sæ­berg (1957), Magnús Hilm­ar (1958), Anna Árdís (1964). Alls eru af­kom­end­urn­ir 34. Útför Helga fer fram frá Grafar­vogs­kirkju föstu­dag­inn 20. des­em­ber klukk­an 13.