ÁFENGI OG HEIMSMARKMIÐ SJÁLFBÆRRAR ÞRÓUNAR
Hér er umsögn IOGT á Íslandi um innleiðingu Íslands á Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. IOGT á Íslandi hefur frá stofnun, árið 1884, unnið að þessum markmiðum og telur að fljótlegasta og skilvirkasta leiðin til að ná þeim sé að neyta ekki áfengis (eða annarra fíkniefna).
Meðfylgjandi er þýddur bæklingur sem fjallar um áhrif áfengis á Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, og kom út síðastliðið haust hjá alþjóðahreyfingu IOGT sem er helsti viðmælandi á heimsvísu í gagnreyndum ráðstöfunum á samfélagsgrunni til að koma í veg fyrir og draga úr því tjóni sem áfengi og önnur vímuefni valda.
Í bæklingnum er sýnt hvernig áfengisneysla hindrar og tálmar að við náum að uppfylla 13 af Heimsmarkmiðunum 17.
Flestum er ljóst að áfengisneysla er meðal stærstu áhrifaþátta sjúkdómabyrði heimsins, líka á Íslandi, en hér er sýnt hve víðtæk og skaðleg áhrif áfengisneysla hefur á flest öll svið samfélagsins, bæði hér á Íslandi og á heimsvísu. Bæklingurinn er mikilvægt innlegg í umræðu, stefnumörkun,og ákvarðanatöku um hvernig við náum Heimsmarkmiðunum fyrir árið 2030 en það er ljóst að til að ná þeim þarf að lyfta Grettistaki í forvörnum gegn neyslu áfengis- og annarra fíkniefna, bæði á Íslandi og í öllum heiminum. Alþingi, ríkisstjórn, ríkisstofnanir, fyrirtæki, félagasamtök, og almenningur verða því að leggjast á eitt til að minnka neysluna og stíga þannig stórt skref að heimsmarkmiðunum.