Ný námskeið fyrir börn 12-14 ára
IOGT býður upp á öflugt sjálfstyrkingarnámskeið í vor. Námskeiðið er hugsað fyrir börn 12-14 ára til að aðstoða þau á erfiðum og vandasömum tíma unglingsáranna. Kennarar námskeiðsins höfðu velt hugmyndinni lengi fyrir sér og langað til að koma á slíku námskeiði. Þegar styrkur bauðst frá IOGT varð kleift að framkvæma hugmyndina. Námsefnið er aðallega fengið úr tveimur áttum: Börn eru líka fólk og að ná tökum á tilverunni.
Nýr bæklingur um áfengi og Heimsmarkmiðin
Alþjóðahreyfing IOGT/MOVENDI hefur gefið út endurbætta útgáfu af áfengi og Heimsmarkmið sjálfbærrar þróunar. Þar er farið yfir hvernig áfengi hindrar og kemur í veg fyrir að við náum markmiðum sem við höfum ákveðið að ná fyrir 2030.
Áfengisfaraldur Evrópu og hvað getum við gert?
Alhliða áfengisskaði hefur áhrif á alla geira samfélagsins. Um 300.000 manns deyja árlega vegna áfengis.
Styrkir úr Lýðheilsusjóði 2019
Í gær var tilkynnt um úthlutun úr Lýðheilsusjóði 2019 og hlutu tvö verkefni IOGT styrk úr sjóðnum auk þess sem Allsgáð Æska og Náum Áttum hlutu styrk. Styrkirnir sem veittir voru IOGT voru fyrir Allraheill og Hvít Jól. Allsgáð Æska hlutu styrk fyrir valdeflingu foreldra í forvörnum og Náum Áttum fyrir
Hjólasöfnun Barnaheilla hófst í áttunda sinn í dag
Á myndinni eru f.v.: Sigurbjörg Helga Sigurgeirsdóttir, frá Æskunni, Aðalsteinn Gunnarsson, frá IOGT og umsjónarmaður hjólaviðgerða, Linda Hrönn Þórisdóttir, verkefnisstjóri Hjólasöfnunar hjá Barnaheillum, Erna Tómasdóttir, sem leikur Matthildi í samnefndum söngleik í uppfærslu Borgarleikhússins, Guðmundur Tryggvi Ólafsson, rekstrarstjóri Sorpu, Elsa Margrét Þórðardóttir, og Erna Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla. Hjólasöfnun Barnaheilla
Forvarnastarf IOGT
Forvarnastarfi IOGT fer vel af stað í ársbyrjun 2019. Við erum með mörg járn í eldinum enda er það meining okkar að það þurfi að nálgast forvarnir með ólíkum hætti.
Bréf til Alþingismanna haustið 2018
Kópavogur 17. september 2018 Kæri Alþingismaður. Velkominn til starfa á nýju þingi. Bindindissamtökin IOGT á Íslandi eru friðar og mannréttindasamtök sem vinna í forvörnum. Við teljum að skjótasta leiðin til að bæta heiminn sé að efla vímulausan lífsstíl. IOGT á Íslandi hvetur þig og aðra alþingismenn til að leggja ekki fram







