Opið bréf til stjórnarformanns Gildis
Gildi lífeyrissjóður hefur sett sér samskipta- og siðareglur. Þar segir „Virðing er borin fyrir markmiðum og tilgangi laga og í starfsemi sjóðsins er ekki reynt að þræða markalínur þess sem er löglegt.“ og „Jafnan skal svara spurningum í samræmi við bestu vitneskju og án nokkurrar tilraunar til þess að villa um fyrir spyrjanda eða afvegaleiða viðkomandi.“
Af 17 stærstu hluthöfum í Högum eru 13 lífeyrissjóðir og er Gildi lífeyrissjóður stærsti hluthafinn.
Forvarnarsamtök og ÁTVR telja netsölu áfengis ólöglega
Búið er að tilkynna að Hagkaup sem Hagar reka ætli að opna ólöglega netverslun í júní með sölu áfengis til almennings. Í sömu andrá segja forsvarsmenn Hagkaupa að löggjöfin sé óskýr að sínu mati hvað slíka sölu áhrærir, en þeir nenni ekki að bíða eftir skýrleika. Því er haldið fram að starfsemi netsalanna sé á gráu svæði. Forvarnarsamtökin Samtökin Fræðsla og forvarnir-félag áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu, Foreldrasamtökin gegn áfengisauglýsingum, IOGT á Íslandi og SAFF-Samstarf félagasamtaka í forvörnum, eru ósammála því sbr. upplýsingar á heimasíðum samtakanna. Löggjöfin hefur ekki ráðgert að hafa markaðsvæðingu sem grundvöll sölu áfengis, heldur er sérstaklega tekið fram í löggjöfinni að lýðheilsa og samfélagsleg ábyrgð séu grundvöllurinn. ÁTVR segir einnig að netsalan, eins og hún fer nú fram hérlendis, er ólögleg. Um þetta má lesa í skýrum formála forstjóra ÁTVR í ársskýrslunni fyrir 2023. Þá hafa heilbrigðisráðherra og félags- og vinnumarkaðsráðherra einnig lýst sinni skoðun á þessu.
Ekki brot á EES og jafnræði
Það er óþolandi að sjá sömu vitleysuna endurtekna sí og æ um meint brot á EES og jafnræði. Kjarni máls er að það er mismunun í því að reka ríkiseinkasölu gagnvart einkarekstri en sú „mismunun“ er málefnaleg og lögleg þar sem hún byggir á lýðheilsu. Þetta er margstaðfest af Evrópudómstólnum. Því er ekkert brot á jafnræði gagnvart erlendum netverslunum um að ræða. Þeim er alveg eins og íslenskum netverslunum óheimilt að vera með starfsemi hér á landi (eða í öðru landi þar sem er ríkiseinkasala). Ef rétt væri að salan væri á gráu svæði, þá er alls ekki boðlegt að ráðherrar og stjórnsýslan líti fram hjá öfugþróuninni svo árum skipti til að knýja fram breytta stefnu í skjóli afskipta- og ábyrgðarleysis. Slíkt verður að teljast óheiðarleg pólitík, sem þjónkar hagsmunum áfengisiðnarins og fórnar lýðheilsu. Nú er svo komið að Hagar ætla að henda sér á þennan vagn undir merkjum erlends félags, sama hvað. Ágæti stjórnarformaður Gildis, samræmist opnun netsölu með áfengi í Hagkaupum siðareglum Gildis?
Sýslumaður segir netsöluna sennilega ólöglega
Fyrst forvarnarsamtökum og ÁTVR er ekki trúað má benda á orð sýslumanns, en það embætti gefur út leyfi til smásölu áfengis. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu segir í svari 16. júlí 2021 til ÁTVR „Sýslumaður telur það ekki ósennilegt að sú athöfn gerðarþola, sem krafist er lögbanns við, brjóti gegn lögvörðum hagsmunum gerðarbeiðenda.“ Á mannamáli þýðir þetta að netsalan sé ólögleg. Ætlar Gildi að horfa í hina áttina þegar Hagkaup brýtur að öllum líkindum lögvarða hagsmuni ÁTVR? Ætlar stjórnarformaður Gildis að sitja þegjandi undir því og gera siðareglur Gildis þannig að engu?
Fjármála- og efnahagsráðherra sýnist staðan ekki í samræmi við lög
Þá segir fjármála- og efnahagsráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, sem fer með málefni ÁTVR, í Bylgjunni þann 23. maí sl. að honum sýnist að staðan sé ekki í samræmi við lög og láti nú kanna það lögfræðilega í ráðuneyti sínu. Ætlar stjórnarformaður Gildis að hundsa þetta? Finnst stjórnarformanni Gildis að sjóðurinn standi undir siðareglunni um að „Virðing er borin fyrir markmiðum og tilgangi laga og í starfsemi sjóðsins er ekki reynt að þræða markalínur þess sem er löglegt.“?
Björn Sævar Einarsson
Höfundur er formaður IOGT á Íslandi.