NÝJUSTU FRÉTTIR OG GREINAR
Með vímuefnalausum lífsstíl náum við árangri.
Góður fundur með embætti landlæknis – samfélagskostnaður áfengisnotkunar og áfengisnotkun ungmenna
Fundurinn snerist um samspil lýðheilsu og stóraukinnar netsölu áfengis sem átt hefur sér stað hérlendis í meira en hálfan áratug, aðgengi að áfengi sem er engin venjuleg neysluvara og unglingadrykkju.
Fréttatilkynning frá Breiðfylkingu forvarnasamtaka
Breiðfylking forvarnarsamtaka fagnar því að ólögleg áfengissala verður loks stöðvuð Eftir bið í meira
Flöggum fána lýðheilsu – málþing um áfengi og lýðheilsu – áskorun
- - - Hálfur áratugur liðinn frá kæru ÁTVR vegna ólöglegrar netsölu áfengis. Enn
Flöggum fána lýðheilsu – málþing um áfengi og lýðheilsu.
Á málþinginu er fjallað um stefnu stjórnvalda í áfengis- og vímuvörnum, íþróttahreyfinguna og forvarnir, nýja skýrslu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og um stöðu ÁTVR í ljósi ferils kærumála á hendur netsöluaðilum áfengis. Fjallað er um afstöðu Íslendinga til bindindismála í gegnum tíðina á líflegan hátt og starf forvarnarsamtaka. Þá verða pallborðsumræður þar sem þingmenn lýsa afstöðu stjórnmálaflokka til lýðheilsu og áfengis.
HVER FÉLAGI ER MIKILVÆGUR
Félagar IOGT eru kjarninn í samtökunum og á þeim byggist starfið hverju sinni. Innan samtakanna starfa stúkur, eins og deildir og félög innan samtakanna eru kölluð, og litlir hópar um ákveðin viðfangsefni. Nýir félagar geta gengið til liðs við starfandi deildir, gerst beinir félagar að samtökunum án þess að vera félagar í ákveðinni deild, eða stofnað nýja deild og valið sér eitt eða fleiri verkefni til að vinna að.
IOGT er öllum opið.
Eina skilyrði fyrir félagsaðild er yfirlýsing um að neyta hvorki áfengis né annarra vímuefna.
BREYTUM RÉTT
Á meðan fátækt, óréttlæti og ójafnrétti finnst, getur enginn unað sér hvíldar. Það þarf ekki að gera svo mikið til að breyta lífi.