Hvít Jól fulltrúar 2019 – Tökum afstöðu
Fulltrúar Hvítra Jóla eru þeir sem velja að nota ekki áfengi hátíðisdagana 24.-26. desember og hvetja aðra til að eiga vímulaus jól. Tökum afstöðu og fáum fleiri í lið með okkur.
Hvít jól er forvarnarátak sem miðar á áfengisneyslu fullorðinna á jólunum. Verkefnið er þróað af IOGT hreyfingunni í Svíþjóð og Finnlandi. Markmið átaksins er að vekja athygli á spurningunni hvers vegna áfengi ætti að vera svo stór þáttur af jólahátíðinni sem miðar svo mikið að börnum. Það dregur líka fram í dagsljósið börn sem ekki eiga að þola að búa við misnotkun áfengis hjá foreldrum. Mörg börn bera kvíðboga gagnvart rauðum dögum almanaksins þar sem foreldrar nota oft frídaga til áfengisneyslu og þess vegna viljum við Hvít Jól.
Átakinu er skipt í tvo þætti. Annars vegar að fullorðnum og hins vegar börnum undir 18 ára aldri. Fullorðni þátturinn er til að breyta norminu og skoðunum gangnvart áfengisneyslunni. Þessi þáttur innifelur að finna flotta sendiherra sem standa fyrir góð gildi. Sendiherrarnir skrá sig á heimasíðuna eða hjá fulltrúum Hvít Jól. Flott fyrirtæki sem taka upp þessa stefnu líka og taka afstöðu gegn því að gefa áfengi í jólagjafir og láta vita af því. Fyrirtækin hvetja líka sitt starfsfólk til að halda upp á hvít jól án áfengis og vímuefna. Fjölmiðlaumræða er mikilvæg í þessu átaki og þurfum við að hvetja sem flesta til að vera með.
Gagnvart börnum og ungmennum eru settar upp skemmtanir í vímulausu umhverfi sem þau geta þá sótt í til að fá frí frá neyslu á þeirra heimili. Þar geta þau fengið stuðning og tilvísun í leiðir sem geta leitt til lausnar á þeirra vanda.