Lýðheilsusigur í héraðsdómi 8. apríl og svör ríkisstjórnar til ESA 21. apríl

Forvarnarsamtökin IOGT á Íslandi, Fræðsla og forvarnir – félag áhugafólks um forvarnir og

heilsueflingu, Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum og SAFF-samstarf félagasamtaka í

forvörnum, fagna því að þann 8. apríl sl. felldi héraðsdómur Reykjaness þann dóm að netsala

áfengis eins og hún hefur verið framkvæmd á Íslandi standist ekki lög. Samtökin hafa lagt vinnu í

að upplýsa almenning um stöðu áfengismála í langan tíma. Þau hafa verið í góðri samvinnu við

heilbrigðisstéttir og SÁÁ í málinu. Samtökin treysta því að stjórnvöld muni standa með gildandi

lýðheilsustefnu samþykktri á Alþingi, tilmælum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar,

gagnreyndum lýðheilsurannsóknum og ályktunum heilbrigðisstétta og forvarnar- og

foreldrasamtaka.

Hér er dómur héraðsdóms Reykjaness.  https://iogt.is/wp-content/uploads/2026/06/Domur-S-1780_8.april-2026_afengislagabrot.pdf

Svör ríkisstjórnar til ESA samhljóma niðurstöðu héraðsdóms

Forvarnarsamtökin fagna því einnig að þann 21. apríl sl. hafi ríkisstjórnin í svörum sínum til

Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) kveðið skýrt upp úr um að það viðskiptamódel, sem netsala á

áfengi styðst við á Íslandi, er ólöglegt. Ríkisstjórnin svarar spurningu nr. 6 frá ESA með

eftirfarandi hætti “ Íslensk stjórnvöld telja ekki að starfsemi sem felur í sér geymslu áfengis

innanlands og síðar afhendingu innanlands teljist einkainnflutningur neytenda. „Innflutningur“

vísar til þess að flytja vörur yfir landamæri frá öðru ríki. Einkainnflutningur krefst því þess að

einstaklingurinn sjálfur sé innflytjandi, kaupi vöruna af erlendum seljanda og beri ábyrgð og

kostnað af því að flytja hana yfir landamæri til Íslands. Viðskiptamódel þar sem fyrirtæki flytur

inn áfengi til Íslands, geymir það í innlendu vöruhúsi og afgreiðir síðan pantanir með afhendingu

innanlands úr þeim birgðum telst innlend smásala en ekki einkainnflutningur.”

Ríkisstjórnin er því sammála niðurstöðu héraðsdóms Reykjaness miðað við svör hennar.

Hér eru svör ríkisstjórnarinnar á ensku.

Hér eru svör ríkisstjórnarinnar í íslenskri þýðingu forvarnarsamtakanna.