IOGT á Íslandi minnir á þá staðreynd að áfengi er nátengt kynbundnu ofbeldi um allan heim. Hér á Íslandi þurfum við að standa gegn auknu aðgengi að áfengi en sterk tengsl eru á milli notkunar áfengis og kynbundins ofbeldis. Sumar rannsóknir sýna allt að 80% ofbeldis er tengt áfengi.
Það einlæg von okkar að við í sameiningu munum draga úr ofbeldi tengdu áfengi. Það að nota minna áfengi er ekki endilega það erfiðasta sem við þyrftum að ganga í gegnum á okkar lífstíð, er það nokkuð? Að fækka dögum þar sem áfengi er notað gæti dregið úr kynbundnu ofbeldi um 2%. Það eru þá þúsundir kvenna sem myndu upplifa meira öryggi.
Fjölgum áfengislausum dögum. Tökum frá 25. hvers mánaðar og gerum hann áfengislausan. Blöndum okkur „Orangedrykk“ og gerum daginn appelsínugulann. Njótum lífsins allsgáð!