Your Content Goes Here

Forvarnarsamtök krefjast þess að farið verði að lögum og að lögreglan stöðvi ólögmæta netsölu áfengis strax. Það er alger lágmarkskrafa í réttarríki að lögreglan bregðist við niðurstöðu héraðsdóms, eigin áliti og áliti ríkisstjórnarinnar um ólögmæta áfengissölu.
Samtökin andmæla yfirlýsingu aðstoðarlögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins frá því í gær um að ef nógu margir brjóti lög þurfi að leita til Alþingis og freista þess að ná fram lagabreytingum. Lögin eru skýr og eftir þeim á að fara.”