Bindindissamtökin IOGT á Íslandi sendi spurningar til frambjóðenda til sveitastjórnakosninga 2026
IOGT á Íslandi hafa borist svör við fimm spurningum sem sendar voru í lok apríl til framboða til sveitastjórna sem bjóða fram þann 16. maí n.k. Spurningarnar tengjast mikilvægum lýðheilsu- og forvarnamálum sem hafa verið áberandi í samfélagsumræðu síðustu mánaða og ára.
Þrátt fyrir að þrotlausa vinnu forvarnarsamtaka og fleiri við að halda lýðheilsu á lofti er staðan sú að aðgangsharka markaðsafla hefur stóraukist og viðbrögð stjórnvalda eru takmörkuð.
Þá má líkja sölu áfengis hérlendis við villta vestrið þar sem nú er farið að selja áfengi í smásölu til neytenda í matvöruverslunum og víðar ólöglega í gegnum netsölu og féll dómur þar um nýlega. ÁTVR kærði slíka netsölu til lögreglu fyrir næstum 6 árum, þann 16. júní 2020. Skoða þarf sérstaklega hvers vegna Lögreglan afgreiddi ekki kæruna fyrr með neinum hætti þrátt fyrir ítrekaðan eftirrekstur ríkissaksóknaraembættisins. Slíkt er undrunarefni án hliðstæðu.
IOGT hefur ásamt fjölda annarra félaga sem koma að forvörnum og samfélagsmálum sent áskoranir til sveitastjórna, alþingismanna og ráðherra um að bregðast við yfirstandandi lýðheilsuógn vegna stóraukinnar netsölu áfengis. Í áskoruninni segir m.a. að „Félögin skora á yfirvöld að hvika í engu frá samþykktri lýðheilsustefnu til ársins 2030 og markmiðum gildandi laga um einkasölu ÁTVR á áfengi.“ Viðbrögð yfirvalda við áskoruninni hafa verið lítil sem engin.
Vegna sorglegrar þróunar í forvörnum, sem eru bæði mikilvæg lýðheilsu- og samfélagsmál, telja forvarnarsamtök að almenningur eigi rétt á að vita afstöðu flokkanna til þessara mála nú þegar styttast fer í kosningar til sveitastjórna.
IOGT á Íslandi telur að svör flestra flokka sýni samstöðu þeirra um að verja börn og ungmenni gegn áfengissölu. Þó eru flokkar sem beita sér fyrir auknu aðgengi að áfengi. Það er okkur mikið áhyggjuefni.
Hér neðar eru töflur með einfaldri já-nei, + og – útgáfu af svörum framboða sem bjóða fram á landsvísu. Viðreisn svaraði ekki. Spurningarnar voru sendar í lok apríl 2026 og svör bárust fyrri hluta maí 2026.
Spurt var:
- Styður þú frumvarp sem heimilar fleirum en ÁTVR smásölu/netsölu áfengra drykkja?
| F | Flokkur fólksins | NEI |
| B | Framsókn Reykjavík | NEI |
| B | Framsókn Múlaþingi | NEI |
| M | Miðflokkur Ísafirði | JÁ |
| M | Miðflokkur Akureyri | NEI |
| D | Sjálfstæðisflokkur | JÁ |
| J | Sósíalistaflokkur Íslands | 0 |
| C | Viðreisn Reykjavík | 0 |
| A | Vinstrið Sanna | NEI |
| P | Píratar | JÁ |
| S | Samfylkingin Reykjanesbæ | + |
| S | Samfylkingin Mosfellsbæ | NEI |
| S | Samfylkingin | NEI |
- Styður þú tilslakanir á banni við áfengisauglýsingum?
| F | Flokkur fólksins | NEI |
| B | Framsókn Reykjavík | NEI |
| B | Framsókn Múlaþingi | NEI |
| M | Miðflokkur Ísafirði | NEI |
| M | Miðflokkur Akureyri | NEI |
| D | Sjálfstæðisflokkur | JÁ |
| J | Sósíalistaflokkur Íslands | 0 |
| C | Viðreisn Reykjavík | 0 |
| A | Vinstrið Sanna | NEI |
| P | Píratar | – |
| S | Samfylkingin Reykjanesbæ | NEI |
| S | Samfylkingin Mosfellsbæ | NEI |
| S | Samfylkingin | NEI |
- Hvaða atriði telur þú árangursríkast í áfengisforvörnum?
| F | Flokkur fólksins | + |
| B | Framsókn Reykjavík | + |
| B | Framsókn Múlaþingi | + |
| M | Miðflokkur Ísafirði | + |
| M | Miðflokkur Akureyri | + |
| D | Sjálfstæðisflokkur | – |
| J | Sósíalistaflokkur Íslands | + |
| C | Viðreisn Reykjavík | 0 |
| A | Vinstrið Sanna | + |
| P | Píratar | + |
| S | Samfylkingin Reykjanesbæ | + |
| S | Samfylkingin Mosfellsbæ | + |
| S | Samfylkingin | + |
- Hefur þú kynnt þér mat lækna og fagfólks á skaðlegum afleiðingum
| F | Flokkur fólksins | JÁ |
| B | Framsókn Reykjavík | JÁ |
| B | Framsókn Múlaþingi | JÁ |
| M | Miðflokkur Ísafirði | JÁ |
| M | Miðflokkur Akureyri | JÁ |
| D | Sjálfstæðisflokkur | JÁ |
| J | Sósíalistaflokkur Íslands | JÁ |
| C | Viðreisn Reykjavík | 0 |
| A | Vinstrið Sanna | JÁ |
| P | Píratar | JÁ |
| S | Samfylkingin Reykjanesbæ | JÁ |
| S | Samfylkingin Mosfellsbæ | JÁ |
| S | Samfylkingin | JÁ |
- Styður þú aukin fjárframlög hins opinbera til frjálsra félagasamtaka sem vinna í forvörnum?
| F | Flokkur fólksins | Já |
| B | Framsókn Reykjavík | Já |
| B | Framsókn Múlaþingi | Já |
| M | Miðflokkur Ísafirði | 0 |
| M | Miðflokkur Akureyri | Já |
| D | Sjálfstæðisflokkur | Nei |
| J | Sósíalistaflokkur Íslands | Já |
| C | Viðreisn Reykjavík | 0 |
| A | Vinstrið Sanna | Já |
| P | Píratar | Já |
| S | Samfylkingin Reykjanesbæ | Já |
| S | Samfylkingin Mosfellsbæ | Já |
| S | Samfylkingin | Já |