Yfirlýsing landsþings IOGT 2026 vegna niðurbrots á gildandi áfengisstefnu

Tilefni yfirlýsingarinnar er að koma á framfæri upplýsingum inn í umræðuna sem nú geisar í samfélaginu um opinbera áfengisstefnu sem hefur verið í gildi. Stefnu sem forvarnarsamtök og fleiri telja að yfirvöld hafi leyft markaðsöflum að mylja undan á síðustu árum í mótsögn við áfengislög, stjórnarsáttmála og samþykkta lýðheilsustefnu Íslands til 2030.

Forvarnarsamtökin fagna því að loks er komin niðurstaða í héraðsdómi um að netsala áfengis eins og hún hefur verið framkvæmd á Íslandi standist ekki lög. Samtökin hafa lagt vinnu í að upplýsa almenning um stöðu áfengismála í langan tíma. Samtökin treysta því að stjórnvöld muni standa með gildandi lýðheilsustefnu samþykktri á Alþingi, tilmælum WHO (Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar) og áfengisforvarnaáætlun, gagnreyndum lýðheilsurannsóknum og ályktunum heilbrigðisstétta og forvarnar- og foreldrasamtaka.

Íslenska forvarnamódelið varð til hjá grasrótinni upp úr aldamótum, byggt á gagnreyndum aðferðum og notað hefur verið sem fyrirmynd í uppbyggingu forvarna með: takmörkuðu aðgengi, háan byrjunaraldur, hátt verð, augýsingabann, fræðslu byggða á ferskum staðreyndum upplýsingum, Samstöðu foreldra, nærsamfélags og yfirvalda í góðri samvinnu við þá sem koma að forvörnum, meðferð og heilbrigðisstétta í málinu. Landsþing IOGT skorar á alþingismenn að standa vörð um þá heilbrigðisstefnu sem stjórnvöld og alþingi hafa samþykkt og felst í því að draga úr skaða sem notkun áfengis og annarra  vímuefna veldur. Skorað er á alþingismenn að taka mark á þeim varnaðarorðum fagaðila forvarna sem lögð hafa verið fram gegn tilslökunum á áfengislögunum. Það er áríðandi að reynsla og þekking þeirra sem vinna í forvörnum hér sem erlendis sé virt. Við hvetjum alþingismenn að vinna markvisst að því að styrkja þá löggjöf sem er í gildi og heilbrigðisstefnan byggir á.

Viðhorfsbreyting er nauðsynleg í viðleitni til að koma böndum á vaxandi kostnað samfélagsins vegna notkunar áfengis en hann er árlega u.þ.b. sá sami og rekstur Landspítalans kostar. Læknar töluðu skýrt á læknadögum í janúar að áfengi veldur skaða í samræmi við notkun. Engin notkun er skaðlaus. Krabbamein eru tengd notkun áfengis. Það má spara gríðarlegar upphæðir sem myndu betur nýtast í annarri þjónustu. Með því að draga úr notkun áfengis styttast biðlistar sem er alvarlegt heilbrigðisvandamál.

Landsþing IOGT varar við gríðarlegum þrýstingi áfengisiðnaðarins sem sér tækifæri í krafti sölugróða til að auka áfengissölu til muna. Aukin notkun áfengis mun valda samfélaginu stórtjóni í auknum kostnaði og þjáningum.

Landsþing IOGT hvetur alþingismenn, stjórnir sveitarfélaga, félagasamtök, fyrirtæki og almenning hér og á heimsvísu til að standa vörð um okkar samfélag, börn og ungmenni sem eru framtíð landsins. Ekki láta undan þrýstingi áfengisiðnaðarins.