Ýmis forvarnarsamtök fagna sakfellingu Héraðsdóms Reykjaness yfir Vilhjálmi Forberg Ólafssyni, forsvarsmanni áfengisnetverslunarinnar Smáríkisins, enda sé niðurstaða héraðsdóms staðfesting á því að netsala áfengis í þeirri mynd sem hún hefur verið framkvæmd á Íslandi hingað til standist ekki lög.

Fyrr í dag var Vilhjálmur Forberg Ólafsson, forsvarsmaður Smáríkisins, sakfelldur fyrir að hafa selt hvítvínsbelg í lok maí í fyrra og er gert að greiða 100.000 krónur fyrir brotið ellegar sæta átta daga fangelsisvist.

Í ákærunni yfir Smáríkinu segir að litið sé á netverslun Smáríkisins sem smásölu áfengis, sem brjóti gegn einkaleyfi Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins til smásölu áfengis hér á landi.

Forvarnasamtök treysta að stjórnvöld standi með lýðheilsustefnu
Að yfirlýsingunni standa forvarnarsamtökin Fræðsla og forvarnir – félag áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu, Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum, IOGT á Íslandi og SAFF-samstarf félagasamtaka í forvörnum.

„Forvarnarsamtökin fagna því að loks er komin niðurstaða í héraðsdómi um að netsala áfengis eins og hún hefur verið framkvæmd á Íslandi standist ekki lög,“ segir í sameiginlegri yfirlýsingu fjögurra forvarnarsamtaka.

Samtökin hafi lagt vinnu í að upplýsa almenning um stöðu áfengismála í langan tíma og þau hafi verið í góðri samvinnu við heilbrigðisstéttir og SÁÁ í málinu.

„Samtökin treysta því að stjórnvöld muni standa með gildandi lýðheilsustefnu samþykktri á Alþingi, tilmælum og áfengisforvarnaáætlun Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, gagnreyndum lýðheilsurannsóknum og ályktunum heilbrigðisstétta og forvarnar- og foreldrasamtaka.“