Læknar standa fyrir málþingi um áfengi og forvarnir 21. janúar
Allir velkomnir! Læknar standa fyrir opnu málþingi fyrir almenning í tengslum Læknadaga. Málþingið Skál fyrir betri heilsu! – Áfengi í alfaraleið – Samtal við samfélagið er í Silfurbergi í Hörpu kl.20 miðvikudagskvöldið 21. janúar nk. Það miðar að því að upplýsa almenning um þá miklu normalíseringu áfengisneyslu sem orðin er og ná fram samtali um hvernig snúa verði þeirri þróun við svo lýðheilsa eflist og fjármagn sparist. Sigríður Dögg Auðunsdóttir, fréttamaður, verður málþingsstjóri, Allir eru hjartanlega velkomnir.
Hér er farið yfir dagskrá málþingsins í léttum tón eins félaga í forvarnarsamtökum.
Alma Möller
Heilbrigðisráðherra ríður fyrst á vaðið með fyrirlestrinum Mikilvægi lýðheilsu, oft var þörf en nú er nauðsyn! Ráðherrann hefur verið ötull talsmaður lýðheilsu um langt skeið, er djörf og lætur ekki hvern sem er þagga niður í sér. Það verður spennandi að hlusta á tóninn í henni.
Lára G. Sigurðardóttir
Næst er Lára, læknir og nemi í taugavísindum, og talar um Undir áhrifum – áhrif áfengis á heila ungmenna. Mjög verðugt umfjöllunarefni nú þegar fjölmargir hafa áhyggjur af velferð og vernd barna og ungmenna.
Anna Björg Jónsdóttir
Öldrunarlæknir fjallar um Eiga amma og afi að sleppa því að drekka? Hér er spennandi efni á ferðinni því nú eru sterk merki þess að fleira eldra fólk neyti áfengis í óhófi miðað við fyrri tíma. Kannski var margt betra „í den“.
Ólafur Þór Ævarsson
Geðlæknir fjallar um Er gott að fá sér einn drykk fyrir geðheilsuna? Það verður áhugavert að heyra hvernig hann svarar þeirri spurningu. Margir segja að áfengi rói taugarnar, en er það rétt? Gott að vita svarið nú þegar allskonar taugatrekkjandi hættur steðja að heiminum.
Karl Andersen
Hjartalæknir talar undir titlinum Áfengi styrkir hjartað… eða hvað? Flott að heyra svarið við því. Allavega hefur maður ekki heyrt að hlauparar eða aðrir íþróttamenn, sem vilja hafa sterkt hjarta, skelli í sig áfengi til að ná meiri árangri. Heldur ekki að læknir hafi ráðlagt áfengisneyslu í nokkru læknisfræðilegu samhengi.
Valgerður Rúnarsdóttir
Fíknlæknir svarar spurningunni Hvenær er áfengisdrykkja orðin áfengisfíkn? í sínu erindi. Margir velta þessari spurningu fyrir sér og hvort þeir sjálfir eða nákomnir séu haldnir fíkn eða ekki. Valgerður veit allt um það enda sérfræðingur í lyflækningum og var fyrst íslenskra lækna til að ljúka sérfræðiprófi í fíknlækningum.
Viðar Halldórsson
Prófessor í félagsfræði, fjallar um.Hvernig verður áfengi að eðlilegum hluta tilverunnar? Kjarnaspurning nú þegar áfengisiðnaðurinn drífur normalísering áfengisneyslu áfram af kappi. Manni skilst að eftir því sem augun sjá hlutinn oftar s.s. áfengi, þeim mun betur líkar þér við slíkan hlut.Þess vegna eru m.a. sígarettupakkar ekki sýnilegir á sölustað í dag.
Gunnar Hersveinn
Heimspekingur og rithöfundur heldur síðasta erindið, áður en opnað er fyrir umræðu, og fjallar um Skýr hugur, skapandi hjarta og hraustur heili. Tilhlökkurnarefni að hlusta á hann sem hefur haft skýra sýn á hve mikilvægt er að fólk velji sér góð gildi sem leiðarljós í lífinu. Gunnar Hersveinn hreyfir alltaf við manni.
Fjölmennum á þetta góða málþing.