Að gefnu tilefni leggja Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Félag lýðheilsufræðinga, Ljósmæðrafélag Íslands, Læknafélag Íslands, Sálfræðingafélag Íslands, Sjúkraliðafélag Íslands, Félagsráðgjafafélag Íslands, Lyfjafræðingafélag Íslands, Iðjuþjálfafélag Íslands, Þroskaþjálfafélag Íslands, Félag áfengis- og vímuefnaráðgjafa, SÁÁ, Fræðsla og forvarnir – félag áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu, Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum, IOGT á Íslandi og SAFF-Samstarf félagasamtaka í forvörnum sameiginlega fram eftirfarandi sparnaðarráð í samráðsgátt:
Þann 26. ágúst sl. komu ofangreind félög heilbrigðisstétta, forvarnasamtaka og fleiri á framfæri áskorun til yfirvalda um að bregðast við yfirstandandi lýðheilsuógn vegna stóraukinnar netsölu áfengis. Í henni kom m.a. fram:
„• Í samþykktri stefnu Alþingis um lýðheilsustefnu til ársins 2030 segir að Íslendingar verði meðal fremstu þjóða í lýðheilsustarfi sem byggist á bestu vísindaþekkingu og reynslu og að stjórnvöld skuli hafa lýðheilsu að leiðarljósi við alla áætlanagerð og stefnumótun. Í lögum um verslun með áfengi og tóbak segir að starfrækja skuli ÁTVR og að markmið laganna sé að skilgreina umgjörð um smásölu áfengis og heildsölu tóbaks sem byggist á bættri lýðheilsu og samfélagslegri ábyrgð, að takmarka og stýra aðgengi að áfengi og tóbaki og draga þannig úr skaðlegum áhrifum áfengis- og tóbaksneyslu, og að vernda ungt fólk gegn neyslu áfengis og tóbaks og takmarka framboð á óæskilegum vörum.
- Félögin skora á yfirvöld að hvika í engu frá samþykktri lýðheilsustefnu til ársins 2030 og markmiðum gildandi laga um einkasölu ÁTVR á áfengi.“
Ofangreindir aðilar vilja, að gefnu tilefni, koma því á framfæri að samfélagslegur kostnaður af áfengisneyslu er mikill. Felst hann m.a. í kostnaði vegna heilbrigðis- og félagsþjónustu, í löggæslu og réttargæslukerfi, vegna eigna- og líkamstjóns og í minni framleiðni samfélagsins m.a. vegna dauðsfalla og vinnutaps. Kostnaður og önnur áhrif falla þannig á neytendur, aðstandendur þeirra og samfélagið í heild. Sjá má staðreyndir um áhrif áfengisneyslu á vef Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar https://www.who.int/news-room/fact-sheets/detail/alcohol
Þá er vakin athygli á því að í bréfi WHO til heilbrigðisyfirvalda á Íslandi þann 18. júlí 2023 er tilgreint að evrópska áætlunin um aðgerðir vegna áfengis 2022-2025, sem samþykkt var einróma af öllum 53 aðildarríkjum árið 2022, hvetur aðildarríkin til að forgangsraða aðgerðum til að stjórna framboði áfengis, þar á meðal að huga að því að taka upp ríkisreknar áfengissölur (including considering the provision of state-operated alcohol outlets).
Eins og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur undirstrikað þá hefur áfengisiðnaðurinn mikla hagsmuni af því að selja áfengi til að hagnast. Áfengisiðnaðurinn beitir sömu aðferðum og tóbaksiðnaðurinn til að koma í veg fyrir eða tefja fyrir reglusetningu stjórnvalda og grafa undan góðri opinberri stefnu. Í nýju skjal frá WHO (nóvember 2024) Empowering public health advocates to navigate alcohol policy challenges – alcohol policy playbook eru teknar saman þær fullyrðingar sem áfengisiðnaðurinn styðst við í sínum málflutningi og gagnrök lýðheilsufólks og stofnana.
Þar segir í formála (bls. VI); Áfengisiðnaðurinn heldur röngum upplýsingum á lofti sem hafa haft skaðleg áhrif á þekkingu og vitund almennings. Innan við þriðji hver Evrópubúi veit að áfengisneysla eykur hættu á krabbameini og aðeins 20% kvenna hafa nauðsynlegar upplýsingar til að geta tekið upplýst val um áfengisneyslu. Viðskiptahagsmunir atvinnugreina eins og áfengis- og tóbaksiðnaðarins rekast stöðugt á lýðheilsumarkmið, en við verðum að hefja okkur yfir þær áskoranir. Eins og undirstrikað er í nýlegri skýrslu WHO/EURO um viðskiptaákvarðanir vegna langvinnra sjúkdóma, þá beita atvinnugreinar háþróuðum aðferðum til að móta skynjun almennings, hafa áhrif á fjölmiðlaumfjöllun, og jafnvel stöðva pólitísk ferli. Þetta undirstrikar nauðsyn þess að stefnumótendur, heilbrigðisyfirvöld og talsmenn lýðheilsu fái þau tæki sem þeir þurfa til að fletta ofan af og eyða þessum skaðlegu og röngu upplýsingum.
„Misinformation perpetuated by the alcohol industry has contributed to a dangerous gap in public awareness; fewer than one in three Europeans know that alcohol increases cancer risk, and just 20% of women have the information necessary to make informed choices about alcohol consumption. The commercial interests of industries like alcohol and tobacco persistently clash with public health objectives, but we must rise above these challenges. As highlighted in the recent WHO/EURO report on the commercial determinants of noncommunicable diseases, industries employ sophisticated tactics to shape public perception, influence media narratives, and even capture political processes. This underscores the urgency of equipping policymakers, health authorities, and advocates with the tools they need to expose and dismantle these harmful narratives.“
Í sömu skýrslu kemur fram í kafla 1.3.1 (bls. 13) að áætlaður samfélagslegur kostnaður áfengisneyslu ef allt er tekið saman nemi um 2,6% af vergri landsframleiðslu (VLF).
„There is a substantial and growing body of literature estimating the economic costs to society that are caused by alcohol use. For example, a 2021 PROSPERO-registered systematic review and analysis identified 29 studies focused on the estimation of alcohol’s social cost (73). An analysis aggregating these identified studies from 29 primarily high-income countries showed that, if all harms caused by alcohol were included, the social cost of alcohol use expressed as a percentage of national gross domestic product (GDP) was 2.6%.“
Verg landsframleiðsla (VLF) á Íslandi var 4.321 milljarður árið 2023. Því má ætla að samfélagslegur kostnaður af áfengisneyslu hafi verið rúmir 112 milljarðar króna á Íslandi árið 2023 út frá gögnum WHO. Nákvæm uppreiknuð upphæð er 112.346.000.000. kr.
Samkvæmt úttekt frá desember 2018 er talið að með því að færa áfengissölu frá Systembolaget, ríkissölunni í Svíþjóð, til einkaaðila myndi áfengisneysla þar aukast verulega. Ef salan væri færð til einkarekinna sérverslana mætti gera ráð fyrir því að áfengisneysla ykist um 20,00% á hvern einstakling. Ef salan væri færð inn í matvöruverslanir ykist áfengisneyslan um 31,2% á hvern einstakling. Fyrirkomulag áfengissölu hefur verið mjög svipað hjá Systembolaget í Svíþjóð og hjá ÁTVR á Íslandi og því mætti gera ráð fyrir að sambærileg neysluaukning yrði hér ef einkaaðilar tækju yfir áfengissölu á Íslandi.
Allar rannsóknir sýna að áfengisneysla hefur neikvæð áhrif á lýðheilsu og mikinn samfélagslegan kostnaði í för með sér. Þær sýna einnig að öll aukning í sölu áfengis, m.a. vegna aukins aðgengis að áfengi, veldur tilheyrandi aukningu á áfengistengdum skaða og samfélagslegum kostnaði.
Það felst því mikill sparnaður í því að hvika í engu frá samþykktri lýðheilsustefnu til ársins 2030 og markmiðum gildandi laga um einkasölu ÁTVR á áfengi.
Sá sparnaður hleypur á milljörðum króna á ári.