Hvít Jól átakið verður áberandi hjá IOGT í desember. Átakið gengur út á að fá fleiri fullorðna til að draga úr neyslu áfengis á hátíðardögunum.

Við förum út á stræti og torg með undirskriftarkynningum, piparkökum, jólakúlum, auglýsingum, umtal

i, barmmerkjum og jólauppákomum fyrir börn, unglinga og fjölskyldur.

Jafnvel í gegnum fréttatilkynningar, bréfum til ritstjóra, greinaskrifa og innlegg í aðra miðla.  Átakið er frá 1. des 2021 til 6. janúar 2022.

Við hvetjum þá sem vilja vera með að hafa samband.

laugardaginn 4. desember kl 10:30 er almenningi boðið að koma í súkkulaði og piparkökur í Vinabæ, Skipholti 33 þar sem verður kaffimorgun IOGT í vinalegu umhverfi.

Öllum deildum og klúbbum IOGT, Núll prósent, Æskunni barnahreyfingu IOGT og áhugasömum er boðið að taka þátt í viðburðum sem ætlaðir eru bæði félögum, fyrirtækjum og almenningi.

Markmið hvít jól 2021 er að varpa ljósi á þarfir barna í samhengi við áfengisneyslu fullorðinna á jólunum. Að fá fleiri fullorðna til að forðast neyslu áfengis yfir Jólalhátíðina.  Það finnast margar leiðir, en markmiðið er það sama. Að upplýsa almenning, stjórnendur og fjölmiðla um aðstæður barna og unglinga og þeirra þarfir í tengslum við áfengisneyslu fullorðinna á jólahátíðinni. Að skipuleggja Vímulaust umhverfi fyrir börn, unglinga og fjölskyldur.

Upplýsingar um átakið er að finna á vefnum www.hvitjol.is og https://www.facebook.com/hvitjol/